Persónuverndarstefna 101 Sambandsins

Viðskiptavinir okkar verða að geta treyst fyrirtækinu fyrir persónuupplýsingum þegar þeir nota þjónustu fyrirtækisins. Við tökum hlutverk okkar alvarlega og leggjum því ríka áherslu á að varðveita persónuupplýsingar þínar eftir því sem best verður á kosið. Með Persónuverndarstefnu þessari viljum við gera þér grein fyrir hvernig söfnun, geymslu og vinnslu upplýsinga er háttað. Við vinnum aðeins með persónuupplýsingar þínar í lögmætum tilgangi eða samkvæmt upplýstu samþykki.

Söfnun og notkun persónuupplýsinga

Til að geta veitt þér þjónustu þurfum við að móttaka ýmsar persónuupplýsingar svo sem nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer eða lykilorð. Við gætum einnig þurft að spyrja um frekari upplýsingar varðandi sérstakar óskir þínar eða þarfir tengdar þeirri þjónustu sem veitt er. Upplýsingar um viðskipti þín, svo sem tegund þjónustu, vörukaup, reikningssögu, reikningsupphæðir, skuldastöðu, kaupsögu og önnur atriði sem tengjast reikningagerð eru líka vistaðar. Við tökum á móti upplýsingum í síma, á netspjalli eða eftir öðrum samskiptaleiðum. Þjónustusímtöl kunna að vera tekin upp og er meðhöndlun þeirra í samræmi við ákvæði laga og reglna. Fjarskiptakerfin okkar skrá þá umferð sem fer um kerfin svo sem símtöl í fastlínu og farsíma, smáskilaboð, auk vefumferðar og nær sú skráning til tíma og dagsetningar, lengd símtals eða veftengingar og staðsetningar. Öll gögn eru vistuð á kerfum Sýnar eða hjá viðurkenndum rekstraraðilum. Við notum þessi gögn aðeins til að veita þér umbeðna þjónustu eða nauðsynlegar upplýsingar, svo sem um breytingu á þjónustu eða skilmálum, til að koma á tengingu við fjarskiptakerfi annarra fjarskiptafyrirtækja, til að geta gefið út reikninga vegna veittrar þjónustu, til að tryggja fjarskipti í útlöndum, við lausn deilumála, til að bæta tjón, til að koma í veg fyrir ólögmæta háttsemi eða misnotkun kerfa og til að byggja upp og vernda fjarskiptakerfin okkar. Með samþykki þínu kunnum við einnig að nota upplýsingar til markaðsrannsókna, svo sem með gerð persónusniðmáts, í því skyni að geta veitt upplýsingar um þær vörur okkar og þjónustu sem henta þér best og sniðið tilboð að þínum þörfum. Lög um fjarskipti mæla fyrir um skyldu fjarskiptafyrirtækja, í þágu rannsókna sakamála og almannaöryggis, til að varðveita lágmarksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í sex mánuði. Eftir þann tíma er gögnum eytt, eða þau gerð ópersónugreinanleg. Þegar þú hættir í viðskiptum við okkur eyðum við gögnum, eða þau gerð ópersónugreinanleg, sem þú hefur látið okkur í té, eins og til dæmis pantanir og þjónustubeiðnir.

Fjarskiptaleynd og öryggi fjarskiptakerfa

Um öryggi gagna um fjarskiptaumferð og fjarskiptanotkun gilda ákvæði laga um fjarskipti nr. 81/2003. Þar er að finna sérstök fyrirmæli um meðferð gagnanna og leynd fjarskipta. Allir starfsmenn okkar eru þannig lögum samkvæmt bundnir þagnarskyldu um allt sem tengist fjarskiptaumferð og fjarskiptanotkun. Hlustun, upptaka, geymsla eða hlerun fjarskipta er með öllu óheimil nema með samþykki notanda eða samkvæmt fyrirmælum í lögum svo sem vegna rannsóknar sakamáls. Brot gegn þagnarskyldu varðar fangelsi allt að tveimur árum. Almenna reglan er sú að gögn um fjarskiptanotkun sem nauðsynleg eru til reikningagerðar og uppgjörs fyrir samtengingu má geyma þar til ekki er lengur hægt að véfengja reikning eða hann fyrnist. Lög um fjarskipti fela einnig í sér ríkar skyldur til fjarskiptafyrirtækja til að tryggja öryggi fjarskiptakerfa. Í samræmi við fyrirmæli laganna höfum við sett okkur öryggisstefnu, framkvæmum reglulega áhættumat og höfum gripið til víðtækra öryggisráðstafanna í okkar kerfum til að tryggja vernd gagna.

Veiting upplýsinga til þriðja aðila

Í vissum tilvikum kunnum við að veita þriðju aðilum upplýsingar um þig til að hægt sé að veita umbeðna þjónustu, til dæmis vegna samtengingar nets og reikis. Ef þriðji aðili er fenginn til að vinna tiltekið verk fyrir Sýn sem felur í sér meðhöndlun persónuupplýsinga er gerður vinnslusamningur við þann aðila þar sem sett eru skilyrði um meðferð og öryggi gagna. Þá getum við veitt þriðja aðila upplýsingar að þinni beiðni, svo sem vegna skráningar í símaskrá. Eins og nánar er kveðið á um í lögum um fjarskipti getur okkur í vissum tilfellum verið skylt að veita opinberum aðilum upplýsingar. Verði vanskil af þinni hálfu kunnum við að veita fyrirtækjum eins og Creditinfo upplýsingar um vanskilin. Ef nauðsynlegt reynist að fela þriðja aðila innheimtu vangoldinna reikninga afhendum við innheimtuaðila þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að reka slíkt mál. Afhending upplýsinga er háð gerð vinnslusamnings við viðkomandi aðila þar sem kveðið er á um meðferð og öryggi gagna. Samkvæmt lögum um fjarskipti er okkur í vissum tilvikum skylt að veita viðurkenndum aðilum, svo sem lögreglu, slökkviliði, sjúkraflutningamönnum eða björgunarsveitum, upplýsingar um staðfestingu búnaðar til að hægt sé að staðsetja neyðarsímtöl.

Persónuvernd á vefsíðum okkar

Allir geta heimsótt vefsíður okkar án þess að skrá þurfi inn persónuupplýsingar. Notkun á Sambands appinu er hins vegar eingöngu fyrir væntanlega og núverandi viðskiptavini okkar eftir innskráningu með notandanafni og lykilorði. Þegar þú heimsækir vefsíður okkar og notar Sambands appið skráum við upplýsingar um tenginguna, þ.e. IP-tölu, tegund vafra, tegund tækja og hvaða síður þú skoðar. Þessar upplýsingar notum við eingöngu í tölfræðilegum tilgangi til að bæta gæði vefsíðna og þjónustu. Það kann að vera að við notum vefkökur (e. cookies) og sambærilega tækni til þess að safna upplýsingum um notkun þína á vefsíðum félagsins. Gerir þetta okkur kleift að hanna vefsíður okkar þannig að þær gagnist þér sem best. Nánar má lesa um vefkökur í skilmálum 101 Sambandsins um notkun á vefkökum.

Þinn réttur – Þitt val

Þú hefur alltaf heimild til að fá aðgang að þeim upplýsingum sem þú hefur afhent okkur, óska eftir leiðréttingu, breytingum eða eyðingu gagna eftir því sem við á. Hafðu samband við þjónustu 101 Sambandsins til að fá afhent eyðublað sem þú þarft að fylla út til þess. Þú getur stjórnað notkun persónuupplýsinga í markaðslegum tilgangi á hverjum tíma. Þetta gerir þú meðal annars með því að hafa samband við þjónustu 101 Sambandsins og óska eftir breytingum.

Hvernig getur þú tilkynnt um atvik?

Ef þú telur að persónuupplýsingunum þínum hafi verið stefnt í hættu óskum við eftir því að fá upplýsingar um það. Hafðu samband við þjónustu 101 Sambandsins til að fá afhent eyðublað sem þú þarft að fylla út til þess. Einnig er hægt að tilkynna atvik til eftirlitsstofnanna. Persónuvernd fer með eftirlit með meðferð persónuupplýsinga og Póst- og fjarskiptastofnun fer með eftirlit með meðferð fjarskiptaupplýsinga og öryggi fjarskiptakerfa. Hægt er að beina kvörtunum til þessara stofnanna ef grunur leikur á um að brotið hafi verið gegn fyrirmælum laga og reglna.

Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um vernd þinna persónuupplýsinga hafðu þá samband við okkur með því að senda tölvupóst á personuverndarfulltrui@sambandid.is. Hér er heimilisfang okkar ef þú vilt senda okkur bréfpóst: Sambandið, 101 Productions ehf. b.t. persónuverndarfulltrúi Hverfisgötu 78, 101 Reykjavík, Ísland

Breytingar á stefnunni

Persónuverndarstefna þessi kann að taka breytingum vegna nýrra lagafyrirmæla eða túlkunar eftirlitsstofnanna á framkvæmd laga um persónuvernd. Við mælum þess vegna með því að þú kynnir þér reglulega persónuverndarstefnu Sambandsins.